Forseti Íslands tók að sér kennslu í Háskóla Íslands

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, tók að sér kennslu í Háskóla Íslands í vikunni. Þetta kemur fram á Facebook-síðu háskólans.

Guðni var í heimsókn í Háskóla Íslands og kenndi í námskeiðinu um Ef-sögu við Sagnfræði- og heimspekideild. „Hann var fyrstur til að kenna þá grein sagnfræðinnar við Háskóla Íslands, sinn gamla vinnustað, og væri sennilega enn að kenna þetta námskeið ef kosningarnar hefðu farið á annan veg,“ segir í færslunni.

Þar kemur einnig fram að nemendur hafi verið mjög ánægðir og eins staðgengill hans, Rasmus Dahlberg, danskur sérfræðingur í Ef-sögu og vinur forsetans.

Auglýsing

læk

Instagram