Veitingastaðurinn Verbúð 11 Lobster & Stuff opnaði við gömlu höfnina í Reykjavík í vikunni. Þrátt fyrir leiðindarveður mætti fjöldi fólks í opnunarpartíið og hreinlega hámaði í sig humarinn og annað stuff.



Verbúð 11 Lobster & Stuff sérhæfir sig í fjölbreyttum humarréttum í bland við annað stuff og á bakvið hann standa athafnamaðurinn Jón Gunnar Geirdal og matreiðslumaðurinn Jón Arnar Guðbrandsson, stofnendur Lemon.
„Þú getur fengið sígilda humarrétti eins og humarsúpu og grillaðan humar í skel en líka léttari sælkerarétti eins og humarsamloku, humarsalat, humarpitsu, humartempura og humardumplings,“ segir Jón Gunnar Geirdal.




Þegar Jón og Jón höfðu keypt staðinn komust þeir að því að Verbúð 11 er gamalt æfingarhúsnæði Sykurmolanna













