Fyrirtæki Margrétar Friðriksdóttur, PLASDA valið sjálfbærasta umbúðafyrirtæki ársins 2025

PLASDA, nýsköpunarfyrirtæki sem staðsett er á Íslandi og vinnur að þróun vistvænna umbúða hefur verið valið sjálfbærasta umbúðafyrirtæki ársins 2025 af breska viðskiptaritinu Corporate LiveWire.

Auglýsing

Umfjöllum blaðsins um fyrirtækið

Verðlaunin verða formlega afhent í Bandaríkjunum á komandi ári og hefur blaði með ítarlegri umfjöllun um starfsemi fyrirtækisins þegar verið dreift víða um heim.

Vistvænar lausnir byggðar á plöntuefnum

Fyrirtækið, sem starfar undir vörumerkjunum PLASDA og Green Eco Bottles, hefur undanfarin ár unnið að þróun umbúða úr plöntugrunni sem það segir bæði brotna niður á umhverfisvænan hátti og eru án örplasts.

PLASDA heldur því fram að slíkar umbúðir geti brotnað niður við náttúrulegar aðstæður og skilja ekki eftir sig eiturefni, plastagnir eða rusl.

Samkvæmt heimasíðu fyrirtækisins er þetta í andstöðu við hefðbundnar plastflöskur sem geta tekið allt að 450 ár að brotna niður, og oft aðeins að hluta, og skilja þá eftir sig örplastsagnir.

Að sögn Margrétar Friðriksdóttur, sem hefur leitt verkefnið frá upphafi, er þetta næsta skref í þróun umbúðaiðnaðarins.

„Við erum að þróa lausnir sem eru raunverulega sjálfbærar og eru hannaðar með móður náttúru að leiðarljósi. Markmiðið er skýrt: að draga verulega úr plastmengun, sérstaklega þeirri sem tengist örplasti,“ segir Margrét í færslu á samfélagsmiðlum.

Alþjóðleg útbreiðsla og samningar við verksmiðjur

Fyrirtækið hefur nú tryggt sér samninga við framleiðendur og samstarfsaðila í þremur löndum í þremur heimsálfum, þar sem vinna stendur yfir við áframhaldandi rannsóknir, þróun og framleiðslu.

Þá tók PLASDA einnig þátt í stærstu nýsköpunar- og tækniráðstefnu heims í Berlín í maí síðastliðnum, og hefur fengið boð á viðburði í arabísku furstadæmunum í næsta mánuði.

„Það ríkir mikil eftirvænting og spennandi tækifæri í kringum þessar vörur. Við sjáum Ísland sem mögulegan leiðtoga í baráttunni gegn plastmengun og teljum raunhæft að Ísland geti orðið fyrsta landið í heiminum til að útrýma mengandi plasti eins og kostur er,“ segir Margrét.

Lausn gegn einu stærsta umhverfisvandamáli heims

Örplastmengun er í dag talin eitt alvarlegasta og útbreiddasta umhverfisvandamál samtímans.

Milljónir dýra deyja árlega vegna plastáts og plastmengunar í hafi, á landi og í lífríki almennt.

Örplast finnst nú í vatni, mat og jafnvel í líkama manna.

PLASDA segist leggja áherslu á að þróa umbúðir sem eru eiturefnafríar, brotna auðveldlega niður og skilja ekki eftir sig örplast, og hvetur aðra plastframleiðendur til að breyta sinni framleiðslu yfir í niðurbrjótanlega og sjálfbæra valkosti.

Framtíðarsýn

Á heimasíðum fyrirtækisins, Plasda.com og Greenbottles.net, má finna nánari upplýsingar um vörur, framtíðarsýn og stefnu fyrirtækisins.

Þar kemur fram að markmið PLASDA sé ekki aðeins að þróa umbúðir heldur líka að stuðla að hugarfarsbreytingu í umbúðaiðnaði á heimsvísu.

„Við hvetjum fyrirtæki sem framleiða plastvörur til að stíga fyrsta skrefið með okkur í átt að grænni framtíð. Með öflugu teymi vísindamanna og sérfræðinga erum við að búa til lausnir sem skipta máli fyrir fólk, náttúru og komandi kynslóðir,“ segir Margrét og bætir við að áhugasamir megi endilega hafa samband.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing