GDRN sigurvegari kvöldsins á Íslensku tónlistarverðlaununum: „Látið ykkur dreyma risastórt og þetta er mögulegt“

Tónlistarkonan GDRN skaraði framúr á Íslensku tónlistarverðlaununm í kvöld. Hún var valin söngkona ársins ásamt því að eiga  tónlistarmyndband ársins, lag ársins og plötu ársins. Í þakkarræðu sinni hvatti hún ungar stelpur til þess að láta sig dreyma risastórt.

Sjá einnig: Hatari kalla eftir svörum frá Katrínu Jakobsdóttur: „Við erum smá confused“

„Þegar ég var að byrja að gera tónlist árið 2017 var mikil breyting í samfélaginu, Metoo-byltingin var að komast af stað. Ég hef verið að sjá ótrúlega grósku hjá ungum stelpum í dag og mig langaði að hvetja allar ungar stelpur sem eru að horfa á þetta núna: Látið ykkur dreyma, látið ykkur dreyma risastórt. Þetta er mögulegt, takk fyrir okkur,“ sagði GDRN þegar hún tók við verðlaunum fyrir bestu poppplötuna.

Sjá einnig: GDRN flutti glænýtt lag í Vikunni með Gísla Marteini

Auglýsing

læk

Instagram