Glowie hitar upp fyrir Ed Sheeran

Íslenska söngkonan Sara Pétursdóttir, betur þekkt sem Glowie, hitar upp fyrir Ed Sheeran þegar hann kemur til landsins og spilar á Laugardalsvellinum 10. og 11. ágúst næstkomandi.

Sjá einnig: Zara Larsson og James Bay koma til Íslands með Ed Sheeran

Í tilkynningu fyrir Senu Live segir að Sheeran hafi sjálfur valið Glowie til að koma fram á tónleikunum en áður hafði verið greint frá því að stórstjörnurnar James Bay og Zara Larsson hiti upp fyrir tónleikana. Það verður því sannkölluð tónlistarveisla á boðstólnum.

Glowie er aðeins 21 árs gömul en hún þykir eitt mesta efnið í poppheiminum um þessar mundir. Hún sló fyrst í gegn hér á landi árið 2015 með laginu No More sem var vinsælasta lag Íslands það ár.

Sjá einnig: Blaðamaður NME lofsamar Glowie: „Getur breytt úreltum hugsunarhætti í popptónlist“

Von er á nýrri breiðskífu frá söngkonunni en hún er á stórum plötusamningi við Columbia og býr nú í London þar sem hún vinnur að plötunni.

Auglýsing

læk

Instagram