today-is-a-good-day

Guðmundur gerir upp árið í geggjuðum annál á Twitter: Klapp, ofpepp og fyrirsögn ársins

Guðmundur Haukur Guðmundsson hefur frá því í byrjun mánaðarins gert upp árið og veitt verðlaun fyrir eitt og annað sem stóð uppúr á árinu 2017. Guðmundur hefur svo daglega birt færslur á Twitter þar sem tilkynnir sigurvegara.

Þetta er annað árið í röð sem Guðmundur fer yfir árið á þennan hátt en hann heldur árlega spurningakeppni fyrir nokkra félaga sem var kveikjan að því að hann fór að horfa um öxl og skoða árið sem er að líða.

„Ég er með spurningakeppni ár hvert fyrir nokkra vini og vandamenn þar sem spurt er um árið sem er að líða, þannig að ég sigta út það sem er kómískt og eftirminnilegt og smelli því á Twitter,“ segir Guðmundur í samtali við Nútímann.

Hér að neðan má sjá nokkur dæmi um verðlaun sem Guðmundur hefur veitt það sem af er desembermánuði en uppgjörið endar á sunndaginn.

Auglýsing

læk

Instagram