Gylfi Þór Sigurðsson geggjaður í nýrri alþjóðlegri herferð Pepsi MAX

Landsliðsmaðurinn, Gylfi Þór Sigurðsson er meðal þeirra leikmanna sem valdir voru til að taka þátt í alþjóðlegri herferð Pepsi MAX. Meðal annarra leikmanna sem taka þátt í herferðinni eru Lionel Messi og Dele Alli en ljósmyndir af leikmönnunum eru skreyttar með hjálp hönnuða úr heimalandi hvers og eins.

Það er íslenski hönnuðurinn Siggi Eggertsson sem hannar auglýsinguna hans Gylfa. „Grafíkin er innblásin af eldfjöllum og jöklum Íslands og undirstrika hæfileika Gylfa til að bræða varnarmenn andstæðinganna og skilja markverði eftir frosna á línunni,“ segir í tilkynningu frá PepsiCo.

Sigríður Rakel Ólafsdóttir, markaðsstjóri Pepsi MAX á Íslandi, er ánægð með útkomuna. „Það er svo gaman að geta sýnt svona óvæntar hliðar á þessum fótboltastjörnum – og svo erum við auðvitað gríðarlega stolt af því að Gylfi Sigurðsson hafi verið valinn til að vera með í veislunni,“ segir Sigríður.

Auglýsing

læk

Instagram