today-is-a-good-day

Swansea heldur áfram að neita tilboðum í Gylfa Sigurðsson

Swansea er búið að hafna nýju 45 milljóna punda tilboði Everton í landsliðsmanninn Gylfa Þór Sigurðsson. Frá þessu greinir netmiðillinn Wales Online í kvöld. 

Seinnipartinn í dag greindu helstu fjölmiðlar Bretlands frá því að tilboð hefði borist í Gylfa frá Everton en aðeins er rúm vika síðan Swansea hafnaði 40 milljóna punda tilboði í kappann.

Svo virðist sem Gylfi vilji ólmur færa sig yfir til Liverpoolborgar og spila með Everton en hann fór ekki með liði sínu í æfingarferð til Bandaríkjanna vegna þeirrar óvissu sem ríkir um framtíð hans.

Auglýsing

læk

Instagram