Hjörtu Íslendinga misstu úr slag þegar minningartónleikar um Valdimar voru auglýstir

Hjörtu margra Íslendinga misstu úr slag í kvöld þegar minningartónleikar um söngvarann Valdimar Guðmundsson voru auglýstir skömmu eftir að beinni útsendingu frá Eurovision lauk.

Ekki var þó allt með felldu þar sem auglýsingin var frá Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka. Sjáðu auglýsingu frá hlaupinu hér fyrir neðan.

Valdimar hyggst hlaupa tíu kílómetra í hlaupinu í ár. Á vef hlaupsins kemur fram að eftir martröð um eigin dauða hafi hann tekið ákvörðun um að skera upp herör gegn ofþyngd sinni, kæfisvefni og almennt versnandi heilsu.

„Ég þarf að vita að ég muni ekki enda einn í kjallaraíbúð og deyja fyrir aldur fram,“ segir Valdimar en hægt verður að fylgjast með undirbúningin hans á vef hlaupsins. Myllumerkið #mínáskorun heldur utan um umræðu á samfélagsmiðlum.

Auglýsingin náði til fólks og á Twitter hefur fólk tjáð sig um hana

https://twitter.com/axfjord/status/730142636774952960

Hér má sjá auglýsingu frá hlaupinu

Auglýsing

læk

Instagram