Höf­und­ur Simp­sons með nýja þætti sem sýndir verða á Net­flix

Höf­und­ur sjón­varpsþátt­anna vinsælu, The Simp­sons, Matt Groen­ing, hef­ur gert samning við Net­flix um framleiðslu á nýrri grínþáttaröð. Þættirnir heita Disenchant­ment og ger­ast í kon­ungs­ríki á miðöld­um. Tíu fyrstu þætt­irn­ir verða frum­sýnd­ir á Net­flix á næsta ári en samið hefur verið um að framleiða 20 þætti.

Matt Groen­ing var í viðtali við New York Times. og segist mjög spenntur fyrir þáttunum. „Þættirnir fjalla um líf og dauða, ást og kyn­líf og hvernig skal hlæja í heimi sem er full­ur af þján­ingu og hálf­vit­um.“

Maurice LaMarche og Tress Mac­Neille sem hafa áður tal­sett fyr­ir The Simp­sons tal­setja per­són­ur þátt­anna ásamt þeim Eric Andre, Abbi Jac­ob­son, og Nat Faxon.

Auglýsing

læk

Instagram