today-is-a-good-day

Listamaður gerði þrívíddarmódel af mennskum Homer Simpson og niðurstöðurnar eru ótrúlegar

Listamaðurinn Miguel Vasquez leikur sér að því færa allskonar teiknimyndapersónur yfir í þrívíddarform þannig að þær verði sem raunverulegastar og deilir síðan niðurstöðunum með fylgjendum sínum á samfélagsmiðlum.

Meðal þeirra sem hann hefur áður gert eru Svampur Sveinsson og Pétur vin hans, Maggi Víglunds í Skrímsli hf og  Ed, Edd d Eddy.

Nýjasta verkefni Miguel var að gera þrívíddarmódel af fjölskylduföðurnum mislukkaða Homer Simpson sem sýnir hvernig hann myndi mögulega líta út ef hann væri mennskur.

Niðurstöðurnar eru magnaðar eins og sést hér að neðan og ekki hægt að gleyma þeim í bráð

Miguel vakti einnig athygli fyrir þrívíddarmódel af Svampi Sveinssyni og Pétri vin hans, sem eru ekkert minna hræðilegt en Homer

Túlkun hans á Magga Víglunds úr Skrímsli hf. á aðeins heima í martröðum

Hægt er að fylgjast með Miguel á Facebook, Twitter og Instagram.

Auglýsing

læk

Instagram