today-is-a-good-day

Hvernig myndi íbúðin í Friends þáttunum líta út í dag? Sjáðu myndirnar

Fjórtán ár eru liðin frá því að síðasti Friends þátturinn fór í loftið. Þessir vinsælu gamanþættir halda þó áfram að gefa af sér og eru enn á meðal vinsælustu þátta í heiminum á streymisveitum. People tímaritið velti því fyrir sér hvernig íbúð Monicu og Chandler sem kvödd var í lokaþættinum myndi líta út í dag ef eftirlætis vinir okkar hefðu aldrei yfirgefið hana.

Sjá einnig: Aðdáendur Friends þáttanna velta fyrir sér undarlegum hlut í eldhúsi Joey

Modsy er fyrirtæki sem sérhæfir sig í því að bjóða fólki upp á gífurlega raunverulega sýn á því hvernig íbúðir geti litið út áður en ráðist er í framkvæmdir. People fengu Modsy til að hanna Friends íbúðina eins og hún myndi líta út í dag.

Niðurstöðurnar eru stórskemmtilegar en Modsy gerðu myndir af íbúðinni eins og hún myndi líta út í dag ef að Chandler og Monica byggju þar enn, ef að Rachel hefði flutt aftur inn til Monicu og ef Joey hefði flutt þangað inn.

Íbúðin breytist töluvert en þó má enn sjá eftirminnilega hluti úr þáttunum, eins og mörgæsina Hugsy, á sínum stað.

Smelltu hér til að skoða myndirnar á vef People

Auglýsing

læk

Instagram