Idris Elba segir að hann muni ekki taka við af Daniel Craig í hlutverki James Bond

Idris Elba virðist nú vera búinn að staðfesta það að hann muni ekki leika James Bond þegar að Daniel Craig stígur til hliðar. Elba vakti athylgi á dögunum með Twitter færslu sem ýtti undir orðróminn að hann yrði næsti Bond en tekur nú fyrir það.

Hann var spurður út í orðróminn á frumsýningu myndarinnar Yardie í London í vikunni. Yardie er fyrsta myndin sem Elba leikstýrir.

Sjá einnig: Idris Elba gefur í skyn að hann verði næsti James Bond: „Ég heiti Elba, Idris Elba”

Þar var hann spurður hvort að hann yrði næsti Bond og svar hans var skýrt. Elba sagði einfaldlega nei.

Lengi hefur verið sá orðrómur í gangi að Elba verði fyrsti svarti leikarinn til að túlka Bond. Hann ýtti undir orðróminn með tísti sínu á dögunum og þá hafa einnig verið háværar sögusagnir um það að Barbara Broccoli, framleiðandi myndanna, vilji fá Elba í hlutverkið.

Auglýsing

læk

Instagram