Íslandsmet í lottóvinningi: Heppinn Íslendingur vann 162 milljónir í Víkingalottóinu

Íslendingur vann fyrsta vinning í Víkingalottóinu í gær. Viðkomandi setti um leið Íslandsmet í lottóvinningi og fær í vasann hvorki meira né minna 161.886.860 krónur. Skattfrjálsar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslenskri getspá.

Vinningshafinn var áskrifandi en þetta er stærsti einstaki happdrættisvinningur sem gengið hefur út hér á landi. Vinningstölurnar í gær voru 7, 10, 16, 34, 37 og 38. Bónustölurnar voru 40 og 46 en ofurtalan 20.

Alls fengu 650 Íslendingar vinning í drættinum í gær.

Auglýsing

læk

Instagram