Íslenskir ráðamenn sniðganga HM í fótbolta

Íslenskir ráðamenn ætla að sniðganga heimsmeistaramótið í fótbolta í Rússlandi í sumar. Ríkisstjórn Íslands tók þessa ákvörðun sem er hluti af samstilltum aðgerðum vestrænna ríkja vegna efnavopnaárásar í enska bænum Salisbury í upphafi mánaðarins. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef utanríkisráðuneytisins.

Í tilkynningunni kemur fram að árásin á Sergei Skripal og dóttur hans sé alvarlegt brot á alþjóðalögum og ógnun við öryggi og frið í Evrópu. „Efnavopnum hefur ekki verið beitt í álfunni frá lokum síðari heimsstyrjaldar. Viðbrögð rússneskra stjórnvalda við árásinni hafa hingað til verið ótraustvekjandi og yfirlýsingar þeirra ótrúverðugar,“ segir þar.

Frændþjóðir okkar á Norðurlöndum, mörg samstarfsríki Íslands í Atlantshafsbandalaginu, og helstu aðildarríki Evrópusambandsins hafa ákveðið að grípa til aðgerða gagnvart rússneskum stjórnvöldum.

Í tilkynningunni kemur fram að í flestum tilvikum vísi ríkin rússneskum stjórnarerindrekum úr landi. „Af hálfu Íslands felast aðgerðirnar í því að öllum tvíhliða fundum með rússneskum ráðamönnum og háttsettum embættismönnum verður frestað um óákveðinn tíma. Af þeirri ákvörðun leiðir að íslenskir ráðamenn munu ekki sækja heimsmeistaramótið í Rússlandi á komandi sumri.“

Auglýsing

læk

Instagram