Jennifer Aniston spennt fyrir endurkomu Friends: „Besta starf í heimi”

Jennifer Aniston, sem lék Rachel Green í vinsælu gamanþáttunum Friends, segir að hún hafi rætt um endurkomu þáttanna við Courtney Cox og Lisu Kudrow.

Sjá einnig: 14 hlutir sem Friends kenndu okkur

Í ítarlegu viðtali við tímaritið InStyle segir hún að hana dreymi um að þátturinn snúi aftur. „Þetta var besta starf í heimi,” sagði hún.

Ég veit ekki hvernig þættirnir yrðu í dag en það er aldrei að vita. Það hafa margir þættir verið að koma aftur við góðan orðstír

Gerðar voru tíu seríur af Friends á árunum 1994 til 2004. Á meðal vinsælla þátta frá þessum tíma sem hafa verið að snúa aftur á skjáinn má nefna Will & Grace, Gilmore Girls og Queer Eye. Þá mun vampírubaninn Buffy snúa aftur fljótlega.

Taktu prófið: Hvaða vinur ert þú?

Jennifer segir að það verði erfiðast að sannfæra Matt LeBlanc en það sé ekki ómögulegt. „Ég veit að hann vill ekki fá spurningar um þetta mál en kannski getum við talað hann til.”

Auglýsing

læk

Instagram