Jessica Biel og Justin Timberlake birta loksins mynd frá ferðalagi sínu til Íslands

Jessica Biel hefur loksins birt mynd frá ferðalagi sínu og Justin Timberlake, eiginmanns hennar, frá Íslandi. Svo virðist sem myndin sé tekin í lauginni að Laugafelli á Sprengisandsleið. Þá sést á myndinni að þau komu á þyrlu.

Í texta með myndinni segist Jessica hafa haldið upp á Cinco de Mayo í náttúrulaug, eins og illmenni úr Bond-myndunum: „Skál!“ Aðdáendur Jessicu kunna vel að meta myndina og hafa líkað við hana tæplega 50 þúsund sinnum.

Jessica og Justin komu til landsins í síðustu viku og dvelja samkvæmt heimildum Nútímans í Úthlíð í Biskupstungum. Þau fengu sér að borða hjá Bakarameistaranum í Suðurveri á dögunum og fengu sér aspasstykki, beikonbræðing og moonsnúð og drukku epla Trópí, vatn og espressó með.

Sjá einnig: Vinsæll leynistaður stórstjarna og milljarðamæringa í Biskupstungum

Þetta sagði Magnús Ingi Kjartansson, starfsmaður Bakarameistarans, í samtali við Nútímann en hann afgreiddi hjónin. Fimm mínútum áður en Justin og Jessica gengu inn í bakaríið kom Íslendingur inn og sagði starfsfólkinu að þetta væri ekkert djók, Timberlake ætlaði að koma og borða á staðnum. Magnús Ingi segist telja að þetta hafi verið starfsmaður þeirra. Hann tók síðan á móti hjónunum og afgreiddi þau.

„Ég bauð bara góðan daginn og ætlaði að afgreiða þau. Ég mælti með allskonar hlutum í borðinu,“ segir Magnús Ingi. Justin valdi beikonbræðing, tvo epla Trópí og Jessica aspasstykki og vatnsglas. Bæði fengu þau sér kaffi og bauð Magnús Ingi þeim upp á moonsnúð í eftirmat í boði hússins.

Auglýsing

læk

Instagram