Jón Daði heldur áfram að bjóða liðsfélögunum íslenskan mat: „Mun ekki fá mér þetta aftur“

Jón Daði Böðvarsson skemmti fylgjendum sínum á Instagram í gær þegar hann bauð liðsfélögum sínum í knattspyrnuliðinu Reading upp á sviðasultu. Í dag hélt hann áfram að bjóða upp á íslenskan mat þegar hann mætti með harðfisk á æfingasvæðið. Liðsfélagar hans voru töluvert hrifnari af harðfisknum en sviðasultunni.

Tveir liðsfélagar Jóns smökkuðu harðfiskinn og það virtist koma þeim töluvert á óvart hversu góður hann var. Jón Daði dró svo fram sviðasultuna á nýjan leik en hún vakti ekki jafn mikla hrifningu.

John O’shea fyrrum leikmaður Manchester United var einn af þeim sem smakkaði sviðasultuna. Hann var ekki hrifinn og sagði að hann myndi ekki fá sér þetta aftur. Þá benti liðsfélagi hans honum á að þeir væru að fara að keppa á morgun og hann ætti ekki að vera að láta þetta ofan í sig.

Þetta stórskemmtilega myndband má finna í „Story“ á Instagram síðu Jóns Daða með því að smella hér.

Auglýsing

læk

Instagram