Auglýsing

Keyrt á vegfaranda á Hopp-hjóli: Ökumaðurinn stakk af á meðan fórnarlambið lá í götunni með beinbrot

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar ökumanns hvítrar bifreiðar sem ók á karlmann um tvítugt á Hopp rafmagnshlaupahjóli á gangbraut á gatnamótum Akurvalla og Burknavalla í Hafnarfirði á milli kl. 10 og 11 í morgun, mánudaginn 3. júní, þannig að líkamstjón hlaust af, en ökumaðurinn ók rakleiðis af vettvangi.

Farið var með hjólreiðamanninn á slysadeild nokkru eftir slysið, en þaðan var tilkynnt um málið til lögreglu. Á slysadeild kom í ljós að maðurinn er með fjöláverka, m.a. beinbrot.

Biður ökumanninn að gefa sig fram

Við atvik eins og þetta er mikilvægt að ökumenn gangi úr skugga um að engin meiðsl hafi hlotist af né að skemmdir hafi orðið. Sömuleiðis er áríðandi að tilkynna málið til lögreglu, ekki síst vegna þess að áverkar eru ekki alltaf sjáanlegir á vettvangi.

Lögreglan biður ökumann hvítu bifreiðarinnar um að gefa sig fram, en hafi aðrir orðið vitni að slysinu eru hinir sömu beðnir um að hafa samband í síma 444 1000. Einnig má senda upplýsingar um málið í tölvupósti á netfangið 1849@lrh.is

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing