Khloe Kardashian tjáir sig um líðan Kim eftir ránið í París: „Henni líður ekki svo vel“

Kim Kardashian West hefur ekki náð sér að fullu af tilfinningalegu áfalli sem hún varð fyrir þegar hún var rænd í París í Frakklandi fyrir rúmri viku.

Þetta sagði Khloe, systir Kim, í þættinum The Ellen DeGeneres Show í dag.

Sjá einnig: Fjölskylda Kim rýfur smá saman þögnina á samfélagsmiðlum, hefur sjálf engu deilt eftir ránið

Khloe sagði að það myndi taka systur hennar tíma að ná sér eftir áfallið. „Henni líður ekki svo vel,“ sagði Khloe og bætti við að ránið hefði verið hræðilegt.

Hún sagði atvikið þarfa áminningu fyrir fjölskylduna sem hefur verið dugleg að deila upplýsingum um líf sitt á samfélagsmiðlum, staðsetningu og eignir. „Þetta er mjög alvarlegt mál,“ sagði Khloe.

Kim hefur enn ekki deilt neinu á samfélagsmiðlum eftir ránið en það er mjög óvenjulegt fyrir hana.

Auglýsing

læk

Instagram