Kim grét þegar hún lýsti ráninu í París í þætti sínum: „Ég hélt að þeir myndu skóta mig í höfuðið“

Kim Kardashian tjáði sig í fyrsta skipti um ránið í París í þættinum Keeping Up With The Kardashians í gærkvöldi. Horfðu á brot úr þættinum hér fyrir neðan. Ræningjar brutust inn í íbúð sem Kim var með á leigu í París í október í fyrra.

Kim fór yfir atburðarásina í þættinum í gær og lýsti því hvernig einn ræninginn setti límband fyrir munn hennar og greip í lappir hennar.  „Ég var ekki í neinu undir sloppnum og hann togaði mig að sér,“ sagði hún í þættinum og bætti við að á þessu augnabliki taldi hún að sér yrði nauðgað.

Ég byrjaði að undirbúa mig andlega en hann gerði það ekki. Svo miðaði hann byssu að höfði mínu og ég hélt að þeir myndu skóta mig í höfuðið.

Kim var svo viss um að hún myndi ekki lifa ránið af að hún bað til Guðs um að Kourtney, systir hennar, gæti lifað eðlilegu lífi eftir að hún kæmi að líki sínu í íbúðinni.

Horfðu á myndbandið hér fyrir neðan

Auglýsing

læk

Instagram