Kim Kardashian klifrar í tré á kræfri mynd í nýrri ljósmyndabók Mert og Marcus

Kim Kardashian situr fyrir í nýrri bók tískuljósmyndaranna Mert og Marcus. Kim birti mynd úr bókinni á Instagram í gær og sagði það sannan heiður að fá að taka þátt í verkefninu.

Bókin kemur út í dag og í henni er að finna 300 myndir. Mert Alas og Marcus Piggott hófu að starfa saman í kjölfarið á því að þeir hittust í partíi árið 1994.

Þeir hafa myndband fyrir tískurisa á borð við Giorgio Armani, Rboerto Cavalli, Fendi, Miu Miu, Gucci, Yves Saint Larent, Givenchy og Lancôme. Þeir hafa einnig myndband tónlistarkonurnar Björk, Lady Gaga, Madonnu, Jennifer Lopez og Rihönnu. 300 myndir eru í bókinni.

Auglýsing

læk

Instagram