Kim Kardashian og Kanye West mætt til landsins, fólk pissaði í buxurnar af spennu í Leifsstöð

Kim Kardashian, Kanye West, Kourtney og fjölskylduvinurinn Johnathan Cheban lentu í Keflavík í morgun.

Kim Kardashian og Kanye West eru á meðal þekktustu hjóna heims og komust því ekki óséð í gegnum Leifsstöð. Fjölmargir Twitter-notendur sáu stjörnurnr þar sem þær læddust í gegnum Leifsstöð í morgun.

Fólk var að pissa í sig af spennu. Nema reyndar ekki þessu náungi.

Kourtney birti svo þessa mynd á Snapchat sem sýnir fararskjóta fjölskyldunnar. Með á myndinni er fyrrnefndur Jonathan.

Vitað var að Kim og Kanye væru á leiðinni til landsins. Í mars greindi Fréttablaðið frá því að þau muni dvelja á 101 hótel og að ferðinni hafi þegar verið frestað einu sinni vegna veðurs.

Heimildir Nútímans herma að það standi til Kanye West taki upp tónlistarmyndband hér á landi og samkvæmt Fréttablaðinu verður það ekki tekið upp í Reykjavík heldur á landsbyggðinni.

Ekki er vitað hvaða lag verður fyrir valinu en búast má við að það sé að finna á nýjustu plötu Kanye West, The Life of Pablo.

Kanye og Kim giftu sig árið 2014 og eiga tvö börn saman: Dótturina North West sem fæddist árið 2013 og soninn Saint West sem fæddist í desember á síðasta ári.

Auglýsing

læk

Instagram