Kim Kardashian situr nakin fyrir í GQ

Kim Kardashian er á forsíðu nýjasta tölublaðs tímaritsins GQ, sem er tileinkað ást, kynlífi og brjálæði. Á forsíðu blaðsins er lofað myndum af Kim „eins og þú hefur aldrei séð hana“ og það er óhætt að segja að myndirnar séu stórglæsilegar.

Á meðal þess sem Kim ljóstrar upp í viðtalinu eru ástæðurnar fyrir því að hún ætlar að kjósa Hillary Clinton í væntanlegum forsetakosningum í Bandaríkjunum.

Smelltu hér til að skoða myndirnar úr nýjasta tölublaði GQ. Ekki skoða þær í vinnunni.

Auglýsing

læk

Instagram