Kokkaflakk snýr aftur í Sjónvarp Símans

Ólafur Örn Ólafsson snýr aftur í glænýju Kokkaflakki í Sjónvarpi Símans. Í þessari þáttaröð heimsækir Ólafur kokk í Falkenberg, vínræktanda í Zurich, bakara í Dubai, barþjón í Chicago og matgæðing í Los Angeles.

Frábærir viðmælendur í sjö bragðgóðum borgum og smakkað verður á því allra besta sem þær hafa upp á að bjóða. Viðmælendur bjóða Óla út að borða á sínum uppáhaldsstöðum ásamt því að skyggnst verður inn í þeirra daglega líf.

Auglýsing

læk

Instagram