Könnun: Fáum botn í þetta mál í eitt skipti fyrir öll — Hvernig á að borða lakkrísrúllu?

Theodór Ingi Ólafsson birti í dag myndir á Twitter sem sýna tvær mismunandi aðferðir við að borða lakkrísrúllu frá Appolo. Með myndunum spurði hann fylgjendur sína hver væri rétta leiðin til að borða lakkrísrúllu. Í kjölfarið fóru af stað heitar umræður og ljóst er að málið er umdeilt.

Þorsteinn Guðmundsson er ekki villimaður!

Er Hörður í Macland villimaður?

Kött Grá Pjé er með lausn?

Eins og sjá má skilaði umræðan ekki afgerandi niðurstöðu og við það verður ekki unað. Við þurfum að fá botn í þetta mál og það strax.

Hvernig á að borða lakkrísrúllu frá Appolo? Við þurfum svör!

Auglýsing

læk

Instagram