Konur í fjölmiðlum mótmæla því að í stéttinni starfi maður sem hefur ítrekað áreitt og beitt samstarfsfólk sitt ofbeldi

Konur í fjölmiðlum sendu í dag frá sér yfirlýsingu vegna hegðunar Hjartar Hjartarsonar á HM í Rússlandi. Þær krefjast þess að yfirmenn fjölmiðla í landinu tryggi öryggi þeirra og annarra starfsmanna sinna á vinnustað.

74 konur skrifuðu undir yfirlýsinguna og krefjast þess að fastar sé tekið á ofbeldi og áreitni á vinnustöðum þeirra. Þær skora einnig á starfsmenn fjölmiðla að fylgja eftir fögrum fyrirheitum #MeToo byltingarinnar og fjallað sé um ofbeldismál þannig að ofbeldismaðurinn beri ábyrgð á hegðun sinni. Í yfirlýsingunni segir:

„Við skorum einnig á starfsmenn fjölmiðla, stéttarfélög fjölmiðlafólks og sérstaklega yfirmenn Sýnar og annarra fjölmiðla að fylgja eftir fögrum fyrirheitum #MeToo og sýna í verki að þegar ofbeldi og ógnandi hegðun er beitt „kastast ekki í kekki” milli fólks, heldur ber ofbeldismaðurinn einn ábyrgð á sinni hegðun.”

Hjörtur Hjartarson, íþróttafréttamaður hjá Sýn, hefur endurtekið orðið uppvís að því að ógna og veitast að samstarfsfólki sínu. Hirti var sagt upp störfum á RÚV árið 2012, eftir að hann beitti samstarfskonu sína ofbeldi sem varð til þess að hún kærði hann fyrir líkamsárás. Hún dró kæruna til baka eftir að hann axlaði ábyrgð og baðst afsökunar. Hjörtur var einnig sendur í leyfi frá störfum sem íþróttafréttamaður á Stöð 2 eftir að hann réðst á samstarfsmann sinn þar árið 2014. Á dögunum var Hjörtur svo sendur heim eftir að hafa veist á ný að fyrrverandi samstarfskonu sinni á RÚV þar sem hún var við störf á HM í knattspyrnu í Rússlandi.

Sjá einnig: Hjörtur Hjartarson sendur heim frá HM vegna óviðeigandi hegðunar

„Alkóhólismi er alvarlegur sjúkdómur. Hann leiðir þó ekki sjálfkrafa til ofbeldishegðunar. Við, konur í fjölmiðlum, teljum ólíðandi að maður sem ítrekað hefur brotið á samstarfsfólki sínu fái sífellt ný tækifæri í fjölmiðlastétt á þeim forsendum hann sé hættur að drekka. Við höfnum því að vinna við slíkar aðstæður,” segir í yfirlýsingunni.

Samstarfskonur Hjartar á Stöð 2 og Bylgjunni skrifa ekki undir yfirlýsinguna að sinni en eru sagðar fordæma hegðun hans.

Hér að neðan má sjá nöfn þeirra sem skrifa undir yfirlýsinguna:

Sigríður Hagalín Björnsdóttir, RÚV
Sunna Valgerðardóttir, RÚV
Ingibjörg Rósa Björnsdóttir, sjálfstætt starfandi blaðakona
Kristjana Arnarsdóttir, íþróttafréttakona á RÚV
Þórhildur Þorkelsdóttir, RÚV
Bára Huld Beck, Kjarninn
Alma Ómarsdóttir, RÚV
Ólöf Ragnarsdóttir, RÚV
Margrét Erla Maack, Kjarninn, áður RÚV og 365.
María Lilja Þrastardóttir, sjálfstætt starfandi blaðakona
María Björk Guðmundsdóttir, RUV
Þórgunnur Oddsdóttir, RÚV
Auður Ösp Guðmundsdóttir, DV
Lovísa Árnadóttir, fv. íþróttafréttakona á RÚV
Milla Ósk Magnúsdóttir, RÚV
Eva Björk Ægisdóttir, sjálfstætt starfandi ljósmyndari
Ásdís Ólafsdóttir, fyrrum dagskrárgerðarmaður á RÚV
Ragnheiður Thorsteinsson, RÚV
Rannveig Jónína Guðmundsdóttir, Víkurfréttir
Lilja Katrín Gunnarsdóttir, Mannlíf og sjálfstætt starfandi
Viktoría Hermannsdóttir, RÚV
Gunnþórunnn Jónsdóttir, Fréttablaðinu
Snærós Sindradóttir, RÚV
Júlía Margrét Alexandersdóttir, Morgunblaðinu
Lára Ómarsdóttir, RÚV
Olga Björt Þórðardóttir, ritstjóri Fjarðarpóstsins
Ragnhildur Thorlacius, RÚV
Erla María Markúsdóttir, mbl.is
Anna Margrét Gunnarsdóttir, fyrrum blaðamaður á Nýju Lífi, Birtíngi
Sigríður Pétursdóttir, lausapenni hjá RÚV og fleiri fjölmiðlum
Ragnhildur Ásvaldsdóttir, sjálfstætt starfandi við dagskrárgerð
Vera Illugadóttir, RÚV
Aníta Estíva Harðardóttir, DV
Ragnhildur Aðalsteinsdóttir, Mannlífi
Kristborg Bóel, Austurglugganum og Austurfrétt
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, ritstjóri Stundarinnar
Sara Sjöfn Grettisdóttir, ritstjóri Eyjafrétta
Anna Marsibil Clausen, sjálfstætt starfandi
Anna Margrét Björnsson, mbl.is
Ragna Gestsdóttir DV
Þorgerður Anna Gunnarsdóttir, mbl.is
Erla Hjördís Gunnarsdóttir, Bændablaðið
Erla Karlsdóttir, fyrrum blaðakona á DV
Brynhildur Björnsdóttir
Þórhildur Ólafsdóttir, RÚV
Þorgerður E. Sigurðardóttir, RÚV
Silja Ástþórsdóttir, fyrrverandi umbrotskona á Stundinni og fyrrum yfirhönnuður Fréttablaðsins
Birna Pétursdóttir
Anna Gyða Sigurgísladóttir, RÚV
Halla Þórlaug Óskarsdóttir, RÚV
Anna Lilja Þórisdóttir, Morgunblaðið
Lára Theódóra Kristjánsdóttir
Fanney Birna Jónsdóttir, Kjarninn og RÚV
Jóhanna Sveinsdóttir
Sigríður Elín Ásmundsdóttir
Áslaug Guðrúnardóttir, fyrrverandi fréttamaður RÚV
Anna Margrét Björnsson, mbl.is
Dagný Hulda Erlendsdóttir, RÚV
Kolbrún Björnsdóttir
Björg Magnúsdóttir, RÚV
Sigyn Blöndal, RÚV
Áslaug Karen Jóhannsdóttir
Ellen Karólínudóttir
Ásdís Ásgeirsdóttir
Lovísa Arnardóttir, Fréttablaðinu
Kristborg Bóel – Austurglugganum og Austurfrétt
Lára Hanna Einarsdóttir, sjálfstætt starfandi
Ástríður Viðarsdóttir, fyrrum blaðamaður mbl.is
Þóra Tómasdóttir
Steinunn Stefánsdóttir, fv. aðstoðarritstjóri á Fréttablaðinu
Erla Tryggvadóttir, fyrrv. starfsmaður RÚV
María Erla Kjartansdóttir, Birtíngi
Kolbrún Björnsdóttir
Inga Lind Vigfúsdóttir RÚV
Elísabet Hall
Auglýsing

læk

Instagram