Kött Grá Pjé vill fara yfir Sprengisand á úlfalda: „Kem niður í Eyjafjörð og ríð inn á Ráðhústorg“

Atli Sigþórsson, best þekktur sem rapparinn Kött Grá Pje, sagði frá því á Twitter í dag að hann langar til þess að verða fyrstur til þess að fara yfir Sprengisand á úlfalda.

Hann sér fyrir sér að koma niður Eyjafjörðinn ríðandi á úlfalda og klára ferðina á Ráðshústorgi á Akureyri við lúðraþyt.

Atli gaf það út fyrr í sumar að hann væri hættur að rappa til að einbeita sér að skrifum og ljóðagerð. Kött Grá Pje er búinn að vera einn fremsti rappari þjóðarinnar undanfarin misseri og margir sjá á eftir kappanum þar.

Auglýsing

læk

Instagram