Macklemore á þetta furðulega olíuverk af nöktum Justin Bieber með pönnuköku á tittlingnum

Tímaritið Rolling Stone fór á dögunum í heimsókn til Ben Haggerty, sem er best þekktur sem tónlistarmaðurinn Macklemore.

Rolling Stone lýsir því sem fyrir augu ber í hljóðverinu og segir að þar sé að finna tonn af upptökubúnaði, vegg af gíturum, og alls konar framandi búnað.

Á veggjunum hanga allskonar sérstök verk. Haförn, olíuverk af Drake að dansa og svo verkið sem þessi frétt fjallar um: Olía á striga. Justin Bieber með hlynsýróp á bringunni og pönnuköku á tittlingnum.

Tímaritið SPIN hafði upp á verkinu og hér má sjá það í allri sinni dýrð

Orð eru óþörf.

Auglýsing

læk

Instagram