Mál Björns Braga í skoðun hjá RÚV – Á ekki von á því að ákvörðun verði tekin í dag

Mál Björns Braga Arnarssonar vegna myndbands sem sýnir hann kynferðislega áreita 17 ára stúlku er til skoðunar hjá RÚV. Skarphéðinn Guðmundsson, dagskrárstjóri hjá RÚV, segir að stjórnendur þar séu meðvitaðir um málið en Björn Bragi er spyrill í spurningakeppnin framhaldsskólanna, Gettu Betur. Þetta kemur fram á vef RÚV.

Skarphéðinn segir að ekki sé hægt að segja meira að svo stöddu en að hann eigi ekki von á því að ákvörðun um framhaldið verði tekin í dag. Björn Bragi baðst afsökunar á hegðun sinni með yfirlýsingu á Facebook í nótt. Hann hefur verið spyrill í Gettu Betur í fimm ár.

Sjá einnig: Brot Björns Braga varða allt að 2 ára fangelsi samkvæmt almennum hegningarlögum

Seint aðfaranótt sunnudags hitti ég stúlku sem ég þekkti ekki. Við áttum stutt samskipti og ég snerti hana á ósæmilegan hátt. Af þessu var tekið myndband sem er nú í dreifingu,“ skrifar Björn Bragi í yfirlýsingunni á Facebook. 

„Þessi hegðun mín var algjörlega óásættanleg og ég er miður mín yfir því að hafa hagað mér með þessum hætti. Það að ég hafi verið undir áhrifum áfengis er engin afsökun. Ég setti mig í samband við stúlkuna og fjölskyldu hennar fyrr í kvöld. Ég bað hana einlægrar afsökunar á framkomu minni.“

Hann segist taka fulla ábyrgð af atvikinu og heldur áfram: „Ég átti gott samtal við móður stúlkunnar. Hún sagði mér að fjölmiðlar hefðu reynt að ná sambandi við bæði sig og stúlkuna. Hún vildi koma á framfæri ósk um að þau yrðu látin í friði. Það vil ég líka gera. Ég ber alla ábyrgð hér,“ skrifaði Björn Bragi.

Auglýsing

læk

Instagram