Mamma Guðna Th. sendi Atla Fannari afmæliskveðju, sjáðu myndbandið

Atli Fannar, ritstjóri og einn eigandi Nútímans, átti afmæli í gær. Hann fékk fjölmargar afmæliskveðjur en ein þeirra stóð upp úr og verður erfitt að toppa. Margrét Thorlacius, mamma Guðna Th. Jóhannessonar forseta Íslands, sendi Atla Fannari nefnilega afmæliskveðju í gegnum myndband á Facebook.

„Mikið lifandi skelfing þykir mér vænt um þetta. Það eru ekki allar mæður sem fá svona umsögn um syni sína,“ sagði Margrét meðal annars í kveðjunni. Sjáðu kveðjuna hér fyrir neðan.

Sjá einnig: Atli Fannar flytur ástaróð til Guðna: „Þú ert einn valdamesti maður landsins, ég er bara pörupiltur að norðan“

Eins og Nútíminn sagði frá í gær flutti Atli Fannar sannkallaðan ástaróð til Guðna Th. í sérstakri páska-örútgáfu af Vikunni með Gísla Marteini í gær. Margrét sá kveðjuna og ákvað að senda Atla Fannari kveðju í tilefni dagsins. Hún notaði líka tækifærið og þakkaði Atla Fannari fyrir góð orð um son sinn.

Nútíminn fékk leyfi til að birta kveðjuna

Auglýsing

læk

Instagram