Meirihluti Íslendinga segist hafa breytt hegðun sinni til að lágmarka áhrif sín á umhverfi og loftslagsbreytingar

Íslendingar virðast nokkuð meðvitaðir um áhrif sín á umhverfið en 64 prósent landsmanna segjast hafa breytt hegðun sinni mikið eða nokkuð síðastliðna 12 mánuði til að lágmarka áhrif sín á umhverfi og loftslagsbreytingar. Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR. Spurningarnar eru hluti af umhverfiskönnun MMR sem framkvæmd var dagana 23. – 29. maí 2019.

Sjá einnig: 68 prósent landsmanna hafa áhyggjur af hlýnun jarðar

Niðurstöðurnar fylgja í kjölfar umfjöllunar um áhyggjur landsmanna af hlýnun jarðar en umfjöllun um umhverfiskönnun MMR heldur áfram á næstu dögum.

Einungis 12 prósent svarenda kváðust ekki hafa gert neinar breytingar á hegðun sinni yfir síðastliðna 12 mánuði. Þegar spurt var um sértækar breytingar á hegðun kom í ljós að Íslendingar eru meðvitaðir um flokkun sorps og kváðust heil 86 prósent hafa síðastliðna 12 mánuði gert miklar eða nokkrar breytingar á flokkun sorps hjá sér.

Þá kváðust 62 prósent hafa gert miklar eða nokkrar breytingar á kauphegðun sinni. Landsmenn virðast þó nokkuð tregari til að gera breytingar á matar- og ferðavenjum en 60 prósent höfðu gert litlar eða engar breytingar á matarvenjum sínum og 69 prósent á ferðavenjum sínum.

Aðrar niðustöður:

– Af konum kváðust 75 prósent hafa gert miklar eða nokkrar breytingar á hegðun sinni, samanborið við 53 prósent karla. Karlar (17 prósent) voru jafnframt talsvert líklegri en konur (7 prósent) til að hafa ekki gert neinar breytingar á hegðun sinni.

– Fólk á aldrinum 18-29 ára (19 prósent) reyndist hvað líklegast til að hafa gert miklar breytingar á hegðun sinni en með auknum aldri fór hlutfalli þeirra stiglækkandi sem höfðu gert miklar breytingar á hegðun sinni.

– Af stuðningsfólki Samfylkingarinnar kváðust 85 prósent hafa gert miklar eða nokkrar breytingar á hegðun sinni og 79 prósent stuðningsfólks Vinstri grænna. Af stuðningsfólki Miðflokksins kvaðst 24 prósent ekki hafa gert neinar breytingar á hegðun sinni, 20 prósent stuðningsfólks Framsóknar og 19 prósent stuðningsfólks Sjálfstæðisflokksins.

Könnunin var framkvæmd dagana 23. til 29. maí 2019 og var heildarfjöldi svarenda 932 einstaklingar, 18 ára og eldri.

Auglýsing

læk

Instagram