Milljónir skemmta sér yfir árás hænu á háskólanema – Sjáðu myndbandið

Boaz Marbach, 22 ára nemi í skólanum Purdue University Fort Wayne í Indiana varð fyrir frá hænunni Avicii í vikunni. Boaz deildi myndnbandi af árásinni sem farið hefur sem eldur í sinu um netheima. Sjáðu myndbandið hér að neðan.

Boaz hlóð myndbandinu upp á Twitter í upphafi vikunnar og það vakti strax mikla athygli. Þegar þessi frétt er skrifuð hafa rúmlega þrjár milljónir manns horft á árásina, þá hafa fjölmargir fjölmiðlar vestanhafs fjallað um málið.

„Við erum með kjúkling í vinnunni sem elskar að ráðast á mig þegar ég sleppi honum,“ skrifar Boaz með myndbandinu.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Avicii ræðst á fólk. „Hann elti einu sinni stelpu sem ég er að vinna með niður götu. Hún þurfti á endanum að henda í hann inniskóm. Það var eina leiðin til að stoppa hann,“ segir Boaz í samtali við BuzzFeed.

Auglýsing

læk

Instagram