Neitaði að taka í höndina á Jóni Daða eftir leikinn: „Við sýnd­um þeim ekk­ert nema virðingu“

Senol Gunes, þjálfari karlalandsliðs Tyrklands í fótbolta, neitaði að taka í hendina á Jóni Daða Böðvarssyni eftir landsleik Tyrkja og Íslands á Laugardalsvelli í gær. Tyrkir voru ósáttir fyrir leik vegna atviks sem átti sér stað við komuna til landsins en Jón Daði segir að Íslendingar hafi ekki sýnt Tyrkjum neina óvirðingu. Þetta kemur fram á vef mbl.

Sjá einnig: Örskýring: Hvers vegna eru Tyrkir brjálaðir?

Jón Daði var ánægður eftir leik en hann stóð sig frábærlega í leiknum þrátt fyrir að hafa ekki spilað reglulega í vetur vegna meiðsla.

„Maður var far­inn að sakna þess að spila fót­bolta á nýj­an leik, hvað þá á Laug­ar­dals­velli, og þetta var þess vegna mjög sæt­ur sig­ur. Maður renn­ur aðeins á adrenalín­inu í svona leikj­um enda stemn­ing­in alltaf frá­bær en ég var far­inn að finna fyr­ir smá þreytu á 60. mín­útu en hefði ef­laust getað þjösn­ast í gegn­um all­an leik­inn en það var klókt að taka mig af velli þarna í seinni hálfleik,“ sagði hann eftir leik.

Jón Daði var einn af þeim sem fékk hótanir frá tyrkneskum stuðningsmönnum fyrir leikinn en hann kippti sér ekki upp við það.

„Ég fékk hell­ing af hót­un­um á Twitter en ég var lítið að pæla í því og nennti ekki einu sinni að skoða þessi skila­boð sem ég fékk. Þessi maður með burst­ann var ekki einu sinni Íslend­ing­ur þannig að við sýnd­um þeim ekk­ert nema virðingu, all­an tím­ann. Ég reyndi að taka í hönd­ina á þjálf­ara Tyrkja eft­ir leik en hann neitaði að taka í hönd­ina á mér eft­ir leik. Maður reyn­ir að sýna eins mikla virðingu og hægt er í þessu sporti og ef maður fær það ekki til baka þá er það bara þannig,“ sagði Jón Daði í sam­tali við mbl.is.

Auglýsing

læk

Instagram