Nokkur augnablik úr Íslandsþætti Keeping Up With The Kardashians, sjáðu systurnar í Bláa lóninu

Íslandsferð Kardashian-systranna Kim og Kourtney, rapparans Kanye West og vina þeirra var eitt af viðfangsefnum þáttarins Keeping Up With The Kardashians á sjónvarpsstöðinni E! í gærkvöldi.

Hópurinn kom til landsins í apríl og vakti heimsóknin mikla athygli. Ungmenni eltu hópinn um götur Reykjavíkur og sungu afmælissönginn fyrir Kourtney sem varð 37 ára í ferð inni til Íslands.

Sjáðu hópinn fara í Bláa lónið í stuttu broti úr þættinum hér fyrir ofan.

Í þættinum er meðal annars sýnt frá heimsókn hópsins í Friðheima þar sem þau smökkuðu allskonar góðgæti. Og þau fengu líka að sjá býflugur

Þessi nældi sér í mynd með Kanye West

17806n

Margir fylgdust með ferðalagi hópsins á Snapchat. Kim, Kourtney og vinur þeirra, Jonathan Cheban, voru dugleg að birta myndbönd frá ferðalaginu um Ísland.

Það vakti talsverða athygli þegar þau töldu að bílstjórinn hefði fretað í bílinn en Íslendingar voru fljótir að sjá í gegnum það og vissu að um hveralykt var að ræða.

Þau kenndu hins vegar Jonathan um allt saman

17807k

Það vakti einnig athygli þegar þau voru rekin upp úr pottinum við Hótel Rangá en aðrir gestir hótelsins höfðu kvartað undan hávaða.

Í þættinum fengum við að sjá augnablikið. Og einnig þegar starfsmaðurinn er beðinn um að endurtaka sig svo hópurinn geti náð því sem hann sagði á Snapchat

17808p

Þau fóru líka í Bláa lónið. Sjáðu brot úr þættinum hér fyrir ofan.

Auglýsing

læk

Instagram