Ofurgrúppan GÓSS sendir frá sér sína fyrstu plötu

Hljómsveitin Góss hefur sent frá sér sína fyrstu breiðskífu. Platan Góssentíð inniheldur útgáfur sveitarinnar af þekktum íslenskum dægurlagaperlum. Hljómsveitin er tríó, skipað þeim Sigríði Thorlacius, Sigurði Guðmundssyni og Guðmundi Óskari Guðmundssyni. Er nafn sveitarinnar einmitt sett saman úr fyrstu stöfunum í nöfnum meðlima.

Þau Sigríði Thorlacius og Sigurð Guðmundsson þarf vart að kynna en þau hafa lengi verið á meðal dáðustu söngvurum þjóðarinnar. Guðmundur Óskar er einn fremsti og fjölhæfasti bassaleikari landsins en hann hefur leikið með ótrúlegum fjölda hljómsveita, auk þess að vinna sem upptökustjóri fyrir fjölmörg verkefni.Sveitin tengist sterkum fjölskyldu- og vináttuböndum en Guðmundur Óskar og Sigurður eru bræður, Sigríður og Guðmundur eru saman í Hjaltalín og öll þrjú hafa þau unnið saman í fjölmörgum mismunandi verkefnum.

Það má því segja að það hafi verið nokkuð fyrirsjáanlegt þegar hljómsveitin GÓSS varð til sumarið 2017. Þá lét sveitin draum verða að veruleika og hélt í tónleikaferð um landið. Sveitin endurtók förina árið eftir og hefur jafnframt spilað við alls kyns tilefni um allt land.Hvar sem sveitin hefur stigið á stokk hafa móttökurnar verið gríðarlega jákvæðar, og því fannst meðlimum sveitarinnar ekki annað hægt en að drífa sig í upptökuverið og reyna að fanga þann góða og ljúfa anda sem skapast hefur á tónleikum sveitarinnar.

Upptökur fór fram í Lágafellskirkju í Mosfellsbæ og var ákveðið að taka fyrir nokkrar af uppáhalds íslensku dægurlagaperlum hljómsveitarmeðlima, eða allt frá Ó, blessuð vertu sumarsól og Sólkinsnætur til Stjórnarinnar, NýDanskrar, Spilverk þjóðanna og alls konar þar á milli. Reyndar fær eitt lag með Leonard Cohen að fylgja með.

Hlustaðu á plötuna:

Sveitin mun fylgja eftir útgáfunni með tónleikahaldi víða um land:
3. júl, mið – Hafnarfjörður, Bæjarbíó
4. júl, fim – Vestmannaeyjar, Alþýðuhúsið
5. júl, fös – Vík, Víkurkirkja
6. júl, lau – Sólheimar í Grímsnesi, Menningarveisla Sólheima
6. júl, lau – Þórsmörk, Básar
7. júl, sun – Hvolsvöllur, Midgard
19. júl, fös – Borgarfjörður, Brúarás
20. júl, lau – Akranes, Gamla kaupfélagið
21. júl, sun – Þorlákshöfn, Hendur í höfn
24. júl, mið – Laugar í Sælingsdal, Hótel Edda
25. júl, fim – Patreksfjörður, Húsið
26. júl, fös – Bíldudalur, Skrímslasafnið
27. júl, lau – Flateyri, Vagninn
28. júl, sun – Reykjanes í Ísafjarðardjúpi, Saltverk
29. júl, mán – Bjarnarfjörður, Hótel Laugarhóll
Auglýsing

læk

Instagram