Opna Kattahótel í Garðabæ

Dýraspítalinn í Garðabæ hefur opnað Kattahótel vegna mikillar eftirspurnar. Kattahótelið er annað sinnar tegundar hér á landi en Kattholt hefur hingað til verið eini staðurinn sem býður kattaeigendum upp á gistiþjónustu.

Jón Örn Kristjánsson, fjármálastjóri dýraspítalans segir í samtali við Morgunblaðið að kúnnar spítalans hafi oft spurt hvort þau geti passað kettina þeirra. „Við höfum aðstöðu og pláss til þess að opna Kattahótel svo við ákváðum að slá til.”

Sjá einnig: Tíu kettlingar og einn köttur hafa fengið heimili í gegnum Keeping Up With the Kattarshians

Gestir hótelsins verða að vera full-bólusettir, ormahreinsaðir og geldir. Jón reiknar með að meirihluti hótelgesta dvelji í um tvær vikur en hægt er að bóka gistingu í allt að þrjá mánuði.

Kett­irn­ir dvelja í stór­um búr­um með hill­um sem þeir geta klifrað upp í. Leikaðstaða er fyrir kettina og fylgst verður með hverjum ketti fyrir sig til þess að meta hvort henti betur að hann sé einn eða með öðrum köttum. Starfsfólk spítalans er viðbúið að taka á móti köttum með ýmsar sérþarfir.

Á hót­el­inu er pláss fyr­ir tutt­ugu ketti en í augnablikinu gist­ir ein­ung­is einn kött­ur þar. „Þetta fer hægt og ró­lega af stað en við höf­um fengið mikið af bók­un­um fyr­ir júlí­mánuð,“ seg­ir Jón Örn við Morgunblaðið.

Auglýsing

læk

Instagram