today-is-a-good-day

Sigmundur svarar Lilju: „Ekkert sem um mig hefur verið sagt í pólitík hefur sært mig eins mikið“

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson svaraði Lilju Alfreðsdóttur með pistli á Facebook síðu sinni í dag en ummæli Lilju í Kastljósinu í gær hafa vakið mikla athygli. Þar kallaði Lilja þá Sigmund Davíð Gunnlaugsson, Gunnar Braga Sveinsson og Bergþór Ólason ofbeldismenn sem ekki eiga að hafa dagskrárvald í íslensku samfélagi. Sigmundur segir ekkert sem áður hafi verið sagt um hann í pólitík hafa sært hann eins mikið.

Sjá einnig: Sjáðu magnað viðtal við Lilju Alfreðsdóttur: „Þeir eru ofbeldismenn“

Sigmundur segir að hann sé fyrst og fremst mannlegur og þurfi að takast á við eigin galla á hverjum degi með það að eilífðarmarkmiði að læra af reynslunni, draga úr göllunum og auka við kostina. Lilja sé vinur hans og það sem hafi reynst honum erfiðast við þau mál sem hafi verið til umræðu að undanförnu sé að særa vini sína, hann skilji því reiði Lilju.

„Ég hef verið kallaður fleiri ljótum nöfnum en ég hef tölu á. Ég minnist þess hins vegar ekki að hafa áður verið kallaur ofbeldismaður. Ekkert sem um mig hefur verið sagt í pólitík hefur sært mig eins mikið,“ segir hann og bætir því við að honum hafi þótt leiðinlegt að sjá Lilju halda því fram að hann hefði ekki haft samband við hana.

„Ég sendi henni skeyti með afsökunarbeiðni til að reyna að koma á samskiptum. Þegar ekki barst svar við því bað ég aðra manneskju að láta hana vita hvernig mér liði vegna þess sem gerst hefði og að mig langaði að hitta hana. Hún afþakkaði það boð að sinni.“

Sigmundur segist hafa viljað ítreka afsökunarbeiðni sína og segja Lilju betur frá heildarmynd samræðnanna þetta kvöld.  Bútar hafi verið klipptir úr upptökunum á þan hátt að heildarmynd og samhengi riðlast.

„Áður var ég búinn að hafa mörg orð um mannkosti Lilju og kalla hana frábæra eins og alltaf þegar ég tala um hana. Þau orð hafa hins vegar ekki verið birt. Fram hafði farið löng umræða um Framsóknarflokkinn og að mennirnir sem stjórnuðu þeim flokki létu Lilju ekki njóta sannmælis, þeir létu hana draga vagninn í kosningabaráttunni en virtu hana ekki sem skyldi. Allir eru meðvitaðir um hversu mikið álit ég hef á Lilju enda hef ég leitast við að undanskilja hana í gagnrýni á ríkisstjórnina,“ skrifar hann.

Fyrir vikið hef ég verið sagður hlífa henni um of og að ég léti hana spila með mig um leið og hún spilaði á framsóknarmennina. Í einkasamtalinu sem tekið var upp og dreift er sótt að mér fyrir að halda hlífiskildi yfir Lilju. Þar tek ég undir að henni sé ekki treystandi pólitískt. Nýlegir atburðir höfðu áhrif það. Ég nefni einnig að ég geti sjálfum mér um kennt sem vísar til þess að ég hafi með skipan hennar rétt Framsóknarflokknum líflínu.

Hann segist því miður ekki hafa atyrt á þá menn sem notuðu ljót orð í æsingi og hann skammist sín mikið fyrir það. Vonist hann þó til að einhverjir hafi skilning á því að þegar maður heyri óþægilega eða grófa hluti séu viðbrögðin oft þau að láta eins og þeir hafi ekki verið sagðir eða hlægja vandræðalega.

„Það að hafa í einkasamtali sagt um annan stjórnmálamann í öðrum flokki að ekki væri hægt að treysta honum pólitískt og viðurkenna að viðkomandi hefði spilað með mig réttlætir vonandi ekki slíkan stimpil.“

Hann segist ekki vera að afsaka með neinum hætti þær umræður sem urðu þetta kvöld og að hann geti ekki lýst því hversu miður sín hann sé yfir þeim og þeirri atburðarás sem hefur orðið í kjölfarið.

„Lilju Alfreðsdóttur óska ég alls hins besta hér eftir sem hingað til. Mér þykir mjög vænt um hana og ber mikla virðingu fyrir henni sem manneskju og stjórnmálamanni,“ skrifar hann að lokum en færslu hans má sjá í heild hér að neðan.

Auglýsing

læk

Instagram