Silja Björk gefur út bók um sjálfsvígstilraunir og þunglyndið: „Kryfur geðheilbrigðiskerfið, bataferlið og lífið sjálft“

Silja Björk Björnsdóttir, Akureyringur, baráttukona í umræðu um geðsjúkdóma og nú fljótlega rithöfundur, stefnir á að gefa út sína fyrstu bók. Í gær, 1. apríl, fór af stað Karolina-fund söfnun fyrir útgáfu bókarinnar; Vatnið, gríman og geltið sem er fyrsta bók Silju Bjarkar en hún hefur verið sex ár í vinnslu. Þetta kemur fram á Kaffið.is.

Silja Björk hefur verið mjög áberandi í samfélaginu í baráttu sinni fyrir geðsjúkdómum. Hún er ein af frumkvöðlum #égerekkitabú herferðarinnar og hefur skrifað fjölda greina um málefnið, veitt ótal viðtöl og verið þátttakandi í sjónvarpsþáttunum Bara geðveik, svo fátt eitt sé nefnt. Hún hélt einnig fyrirlestur á TEDx ráðstefnu í Hörpu vorið 2014, um upplifun sína af sjálfsvígshugsunum. Fyrirlesturinn er titlaður The Taboo of Depression og hefur fengið rúmlega 140.000 áhorf á YouTube.

„Vatnið, gríman og geltið er saga mín af þunglyndi, sjálfsvígstilraunum, dulúð vatnsins, grímunum sem við berum öll og geltandi, svörtum hundum. Sagan er byggð á upplifun minni á geðsjúkdómum og er frásögnin litrík og ljóðræn á sama tíma og hún kryfur geðheilbrigðiskerfið, bataferlið og lífið sjálft. Ég byrjaði að skrifa þessa bók fyrir sex árum, löngu áður en ég vissi að þetta væri bók. Mér leið ennþá mjög illa eftir innlögnina á geðdeild og þurfti að koma tilfinningunum frá mér. Ég ákvað svo eftir rúmlega ár af skrifum að ég ætlaði einn daginn að gefa bókina út. Ég vona að þessi söfnun geti gert þann draum að veruleika,“ segir Silja á Kaffið.is.

Söfnunin hófst sem fyrr segir í gær og hefur nú þegar safnast yfir 50% af markmiðinu sem er 4000 evrur eða um 530 þúsund krónur.Hægt er að styrkja verkefnið allt frá 2.100 krónum upp í 43.400 krónur og í boði eru árituð eintök, fyrirlestrar og boð í útgáfupartýið.

Smelltu hér til þess að lesa nánar um söfnunina og fyrir upplýsingar um hvernig má styrkja verkefnið.

Auglýsing

læk

Instagram