today-is-a-good-day

Snapchat býður nú loksins upp á filtera fyrir ketti: „Filterar fyrir svala ketti“

Samfélagsmiðillinn Snapchat kynnti í gær nýja uppfærslu sem ætti að gleðja eigendur katta. Miðillinn sem kom á markað í lok árs 2011 hefur nú loksins ákveðið að bjóða upp á svokallaða filtera fyrir ketti.

„Filterar fyrir svala ketti. Prófið þá, mjáw,“ skrifuðu forsvarsmenn Snapchat í færslu sem birt var á Twitter í gær vegna málsins.

Nýjungin hefur mælst vel fyrir meðal kattaeigenda en eigendur hunda eru hreint ekki ánægðir með að fá ekki að vera með. „Hvað með hundana okkar,“ skrifaði einn ósáttur hundaeigandi á Twitter.

Auglýsing

læk

Instagram