today-is-a-good-day

Svandís Svavarsdóttir leggur til að heimilt verði að eyða fóstri til 22. viku

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra ætlar að að leggja frumvarp til laga sem heimilar þungunarrof til loka lok 22. viku. Þetta kemur fram í tilkynningu frá velferðarráðuneytinu.

Í frumvarpinu verður, líkt og í gildandi lögum, lögð áhersla á að þegar þungunarrofs er óskað skuli það ætíð framkvæmt eins fljótt og hægt er. Í núverandi lögum er fóstureyðing heimil til loka 16. viku meðgöngu. Auk þessa er kveðið á um heimild til fóstureyðingar eftir 16 vikur, „séu miklar líkur á vansköpun, erfðagöllum eða sköddun fósturs“.

Í frumvarpi heilbrigðisráðherra er réttur kvenna til sjálfsforræðis og ákvarðanatöku byggðri á óhlutdrægri fræðslu og ráðgjöf hafður að leiðarljósi og sömuleiðis virðing fyrir mannréttindum og mannlegri reisn.

Í þeim drögum að frumvarpi sem nýlega voru birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda var gert ráð fyrir að heimilt yrði að framkvæma þungunarrof að ósk konu, óháð ástæðum að baki þeim vilja, fram að 18. viku. Einnig var í drögunum gert ráð fyrir takmörkuðum heimildum fyrir þungunarrofi eftir lok 18. viku ef lífi konu væri stefnt í hættu með áframhaldandi þungun eða ef fóstur teldist ekki lífvænlegt til frambúðar.

Nánar má lesa um frumvarið hér.

Auglýsing

læk

Instagram