Það sem við vitum um árásina á Lundúnabrúnni

Árásarmenn óku sendibíl í hóp fólks á Lundúnabrú og stungu svo fólk á Borough-markaði í gærkvöldi. Fjallað er nánar um málið á vef The Guardian.

Hér er það sem við vitum um málið

  • Sjö eru látnir eftir árásirnar og árásunum er lýst sem hryðjuverkaárás.
  • Þrír menn sem grunaðir eru um árásirnar hafa verið skotnir til bana af lögreglu.
  • Að minnsta kosti 48 til viðbótar eru slasaðir og hafa verið fluttir á sjúkrahús.
  • Umferðarlögregluþjónn var stunginn í andlitið þegar hugðist bregðast við árásinni á Lundúnabrú.
  • Samkvæmt talsmanni lögreglunnar í Lundúnum hefur lögreglan náð tökun á ástandinu í borginni. Ekki er búið að bera kennsl á árásarmennina.

Lögreglumaður birti þessi skilaboð á Twitter í morgun.

Sendiráð Íslands í London biður Íslendinga sem staddir eru í Lundúnum að láta aðstandendur vita af sér.

Auglýsing

læk

Instagram