Þáttur um forsetakosningarnar þvælist fyrir stelpunum okkar á aðalrás RÚV

Skarphéðinn Guðmundsson, dagskrárstjóri RÚV, segir eðlilegar skýringar á bakvið þá ákvörðun að sýna mikilvægan leik kvennalandsliðsins á hliðarrásinni RÚV 2 en æfingaleik karlalandsliðsins í kvöld á aðalrás RÚV.

Sjá einnig: RÚV sýnir æfingaleik karlalandsliðsins á aðalrás en mikilvægan leik kvennalandsliðsins á hliðarrás

Nútíminn fjallaði um málið í morgun. „Þessi dagskrársetning á sér eðlilegar skýringar, eins og annað sem við dagskrársetjum gaumgæfilega og með tilliti til allra þátta sem fyrir liggja hverju sinni,“ segir Skarphéðinn í samtali við Nútímann.

Hvað varðar leik karlaliðsins í kvöld þá er sannarlega ekki um hefðbundinn og óbreyttan æfingarleik að ræða heldur er þetta kveðjuleikur liðsins áður en það heldur í fyrsta sinn á EM.

Skarphéðinn segir að það sé vinnuregla RÚV að dagskrársetja mikilvæga leiki landsliða, bæði karla- og kvennalandsliða, á aðalrás sé þess kostur.

„Ástæðan fyrir því að leikur kvennalandsliðsins í forkeppni fyrir EM kvenna 2017 var hinsvegar dagskrársettur á RÚV 2 er sú að hann skarast við mikilvægan dagskrárlið sem er Baráttan um Bessastaði, umfjöllun RÚV um frambjóðendur til forsetakosninga, sem vitanlega þarf að vera dagskrársettur með mjög formföstum, skýrum og samræmdum hætti, til að gæta jafnfræðis, umfjöllun sem ekki verður hægt að færa til eða hefja síðar sökum fjölda frambjóðenda.“

Kvennalandslið valtaði yfir Skota á föstudag og getur með sigri á Makedóníu á morgun tryggt sér sæti á EM á næsta ári. Skarphéðinn segir RÚV hafa ákveðið að bregðast við því „eins og vel og svigrúm í dagskrá leyfir“ og bætir við að seinni hálfleikurinn verði sýndur strax að lokinni umfjöllun um forsetakosningarnar.

„En allur leikurinn verður eftir sem áður og að sjálfsögðu sýndur á RÚV2,“ segir hann.

Auglýsing

læk

Instagram