Þessi bolli frá háskólanum í norður-Texas er að kæta internetið

Mynd af hefðbundnum kaffibolla hefur farið eins og eldur í sinu um internetið undanfarna daga. Bollinn er frá háskólanum í norður-Texas sem hefur skammstöfunina UNT.

Það þarf bara að bæta einum staf við til að fá annað orð og handfangið á bollanum sér um það.

Bollinn var til sölu á vef Barnes&Noble en finnst þar ekki lengur.

Fólk spyr sig því hvort það sé viljandi — er búið að taka hann úr sölu? Eða er hann bara uppseldur?

Auglýsing

læk

Instagram