Auglýsing

„Þetta mál er mér ekki til sóma og mér þykir það mjög leiðinlegt“

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir þingmaður Pírata hefur sent frá sér yfirlýsingu til fjölmiðla vegna máls sem kom upp á skemmtistaðnum KíKí aðfaranótt laugardags og Nútíminn greindi frá í dag. Þar kemur fram að hún hafi beðið hlutaðeigandi afsökunar á framkomu sinni og tekur það fram að það séu forréttindi að vera kjörinn fulltrúi – því fylgi ábyrgð og henni þyki það leitt að hafa brugðist svona við.

Yfirlýsingin í heild sinni:

„Þetta mál er mér ekki til sóma og mér þykir það mjög leiðin­legt. Ég var búin að drekka of mikið og brást illa við þegar dyra­verðir opnuðu hurðina á kló­sett­inu, ég var dóna­leg og streitt­ist á móti. Óháð öllu öðru, var hegðun mín ekki til fyr­ir­mynd­ar. Ég hef beðið hlutaðeig­andi af­sök­un­ar á fram­komu minni. Það eru for­rétt­indi að vera kjör­inn full­trúi, því fylg­ir ábyrgð og mér þykir leitt að hafa brugðist svona við.“

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing