Þjóðin kýs um framtíð piparhúðaða Nóa kroppsins

Kosning um framtíð piparhúðaða Nóa kroppsins hefst á Facebook-síðu Nóa Síríus á morgun. Kosningin stendur yfir í viku. Þetta kemur fram á mbl.is.

Sjá einnig: Piparnammi er í tísku á Íslandi en stenst bragðið væntingar? Við smökkuðum það allt

Piparhúðað Nóa kropp átti aðeins að vera í boði í sumar en hefur slegið í gegn. Silja Mist Sig­ur­karls­dótt­ir, vörumerkja­stjóri hjá Nóa Síríus, seg­ir í samtali við mbl.is að piparhúðaða Nóa kroppið sé á góðri leið með að taka fram úr öðrum vör­um fram­leiðand­ans í vin­sæld­um.

Hún segir að piparhúðaða Nóa kroppið vera í boði í tak­mörkuðu magni og aðeins í sum­ar en að það hafi nú verið end­ur­skoðað í ljósi vin­sæld­anna.

Örlög piparhúðaða Nóa kroppsins ráðast í næstu viku.

Auglýsing

læk

Instagram