Meirihluti vill halda áfram framleiðslu á piparhúðu Nóa kroppi: „Konan er alltaf að kaupa þetta“

Kosning um framtíð piparhúðaða Nóa kroppsins hófst í morgun á Facebook-síðu Nóa Síríus. Kosningin stendur yfir í viku en þegar þetta er skrifað hafa tæplega 3.000 manns greitt atkvæði.

Sjá einnig: Þjóðin kýs um framtíð piparhúðaða Nóa kroppsins

Skiptar skoðanir eru um piparhúðaða Nóa kroppið en samkvæmt lauslegri athugun Nútímans vilja langflestir að Nói Síríus haldi áfram framleiðslu á sælgætinu. Nútíminn tók saman nokkur stórskemmtileg ummæli fólks sem annað hvort berst fyrir áframhaldandi framleiðslu sælgætisins eða vill það burt af markaði ekki seinna en í gær.

Anna Sóley Pétursdóttir segist ekki geta lifað án þessa bragðdrauma. Elva Guðrún Gunnarsdóttir er sammála og segir áframhaldandi framleiðslu bráðnauðsynlega. Inga Lilja Jónsdóttir segir að það megi hreinlega ekki hætta að framleiða piparhúðað Nóa kropp. „[Ég] er við það að fullkomna uppskriftina mína að dásamlegri köku og þetta er mikilvægt innihaldsefni í henni,“ segir hún.

Stefanía Ragnarsdóttir er sammála. „Já það væri jafn mikið glapræði af Nóa Sírius að framleiða þetta ekki, eins og ef Netflix myndi ekki framleiða seríu 2 af Stranger Things! Áfram Pipar-Kropp,“ segir hún. Kristín Inga Karlsdóttir er afdráttarlaus. „Aldrei hætta með þetta Nóa kropp,“ segir hún.

En ekki eru allir sammála

Ragnhildur Pálsdóttir segir þetta með versta nammi sem hún hefur smakkað. Erla Rut Valsdóttir er sammála og segir það „drulluvont“. Berglind Ósk Alfreðsdóttir hefur áhyggjur af neyslunni og segir fólk borða allt of mikið af þessu.

Ragnheiður Rafnsdóttir er vill augljóslega að framleiðslunni verði hætt „Ógeðslegt,“ segir hún og Arnar Marteinsson tekur undir það. „Þetta má alveg hverfa,“ segir hann. Áslaug Kristinsdóttir á aðeins eitt orð til að lýsa sælgætinu: „Ullabjakk.“

Aðrir eru búnir að vera óttaslegnir og kvíðnir vegna óvissu um áframhaldandi framleiðslu á piparhúðuðu Nóa kroppi

Kolbrún Þorkelsdóttir segist hafa verið í óttakasti: „Ég kvíði þeim degi að missa þennan unað af markaði. Ég segi Já!“ Svanhildur Sól Sigurbjarnardóttir er sammála. Svo mikið uppáhalds,“ segir hún. „Þarf að segja Nóa kroppinu að hætta að horfa á mig í búðinni svo ég kaupi það ekki.“

Aðrir grípa til allra mögulega ráða

Ingveldur Oddný Jónsdóttir segir já: „Það er náttúrulega bara rugl hvað þetta er gott, ég er enginn brjálaður Nóa kropp aðráandi en ég er húkt á þessu farin að fela þetta í bílnum svo fjöllan éti þetta ekki frá mér þannig STÓRT JÁ.“

Sjá einnig: Piparnammi er í tísku á Íslandi en stenst bragðið væntingar? Við smökkuðum það allt

Vigdís Sigrún Ársælsdótir hóta málsókn: „Úfff ég er að hugsa um að fara í mál við ykkur ef þið seljið þetta áfram, þar sem ég get ekki hætt að borða þetta og gæti endað með ósköpum – elska þetta.“

Á meðan aðrir þurfa að fara að skoða sín mál

Borgþór Hjörvarsson vill meira. „Já, fá þetta í stærri umbúðum. Þetta er alltaf búið.“ Rakel Björt vill stúta poka á hverjum degi: „Já þetta er nýja uppáhalds nammið mitt.“ og Guðmundur Karl Atlason hefur bætt á sig. „Nei konan er alltaf að kaupa þetta og ég er að verða spikfeitur á þessu.“

Auglýsing

læk

Instagram