Þorsteinn ruglaðist og Einar spilaði undir á bjölluna

Það er stundum fjör á Alþingi, eins og myndbandið hér fyrir neðan sýnir.

Þor­steinn Sæ­munds­son, þingmaður Fram­sókn­ar­flokks­ins, hóf í dag ræðu um laga­frum­varp iðnaðar- og viðskiptaráðherrra um vist­hönn­un vöru sem not­ar orku þegar hann átti að taka af­stöðu til beiðni um skýrslu um út­flutn­ing á orku um sæ­streng.

Ein­ar K. Guðfinns­son, for­seti Alþing­is, reyndi að gera Þorsteini viðvart með fögru bjölluspili en Þorsteinn var ansi lengi að átta sig miðað við lætin.

Þegar Einar náði sambandi við Þorstein og gerði honum grein fyrir aðstæðum sagði Þorsteinn: „Af­sakið. Þá er ég bara að þjófst­arta hérna.“

Fylgdu Nútímanum á Facebook og þú missir ekki af neinu.

Auglýsing

læk

Instagram