Tölvuleikjaframleiðandinn EA Sports tjáir sig ekki um ákvörðun KSÍ að vera ekki með í FIFA 17

Bandaríski tölvuleikaframleiðandinn EA Sports hyggst ekki tjá sig um ákvörðun KSÍ að hafna boði um að vera með í FIFA 17. Þetta kemur fram í umfjöllun um leikinn á vef breska dagblaðsins The Guardian.

Örskýring: Af hverju voru allir að tala um FIFA17 í vikunni?

Nútíminn sagði fyrstur fjölmiðla frá málinu í vikunni. Í fréttinni kom fram að áhugi hafi verið fyrir því að hafa Ísland með í FIFA 17 en að samningar hafi ekki náðst milli EA Sports og KSÍ.

Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, sagði í samtali við Nútímann að EA Sports hafi boðið lága fjárhæð fyrir réttindin, lítilræði sem KSÍ sætti sig ekki við. Síðar kom í ljós að umrædd upphæð var um 1,7 milljónir króna.

Fjölmiðlar um allan heim hafa fjallað um málið og óskað eftir viðbrögðum frá EA Sports. Í umfjöllun The Guardian kemur fram að fyrirtækið tjái sig ekki um einstaka samninga.

David Rutter, yfirframleiðandi FIFA-leikjanna, segir hins vegar að samningarnir sem gerðir eru við knattspyrnusambönd og lið séu mikilvægur og krefjandi hluti af framleiðsluferlinu.

Við erum með metnaðarfullt lið sem heldur utan um leyfin fyrir liðum, deildum og samstarfsaðilum. Ferlið er stundum einfalt og stundum flókið.

Á miðvikudagsmorgun beið Geirs tölvupóstur frá EA Sports en fyrirtækið hafði orðið vart við umræðuna daginn áður og vildi hefja viðræður við KSÍ um þátttöku Íslands í FIFA18.

Geir sagði í kjölfarið að nú hefði félagið rúman tíma til að semja. Hann segir að markmið beggja aðila sé að bæði karla- og kvennaliðið verði með í næsta leik.

FIFA 17 kemur út 29. september næstkomandi.

Auglýsing

læk

Instagram