Vandræðalegasta augnablik ársins á Óskarnum þegar röng kvikmynd var tilkynnt sem sú besta

Röng kvikmynd var tilkynnt sem besta kvikmyndin á Óskarsverðlaunahátíðinni í nótt. Moonlight var valin besta myndin en La La Land var lesin upp. Sjáðu myndband af þessu ótrúlega atviki hér fyrir neðan.

Faye Dunaway og Warren Beatty virðast hafa fengið rangt umslag í hendurnar þar sem stóð „Emma Stone – La La Land“ en hún hafði nokkrum mínútum áður fengið Óskarinn fyrir frammistöðu sína í La La Land.

Aðstanendur La La Land voru komnir upp á svið og búnir að taka við verðlaununum þegar mistökin uppgvötuðust. Þeir afhentu því aðstandendum Moonlight verðlaunin.

Auglýsing

læk

Instagram